Ungmennafélag Arnheiðar

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

11.06.2006 10:17:46 / Adda

með sól í hjarta

Nú er einn dagur eftir hér á Maspalomas með Evu og fjölskyldu.  Á morgun flýg ég til Lanzarote og þaðan til Íslands daginn eftir.  Er búin að hafa það frábært, liggja í leti, teygja úr tánum og fara næstum daglega í gönguferð með Guðrúnu.  Einn daginn labbaði ég um heilan dag og varð dáldið sólbrunnin eftir daginn, á öxlum, bringu og .... á hnánum 8|  Er nú að jafna mig en ennþá eldrauð í kringum hnén, veit nú ekki alveg hvernig ég fór að þessu.  Eva er sæl og kát á Kanarí, syngjandi og trallandi og hlakkar mikið til að eignast nýtt systkin í haust.  Um daginn vorum við að tala um bræður og systur og ég spurði hana hvort hún vissi hver væri bróðir minn.  Hún hugsaði sig vel og vandlega um og spurði hvort það væri Almar Blær (sem er frændi hennar).  "Neeei," sagði ég, "bróðir minn heitir Egill Helgi Árnason".  Hún ljómaði eins og sól í heiði og sagði spennt, "váá, alveg eins og pabbi minn" :)  Henni fannst þetta frábær tilviljun. 

Bestu kveðjur til Íslands

Adda

Bea skrifaði
m kv frá okkur hér Njóttu vel
bivar skrifaði
heybs.. mikill lúxus að vera úti í hita og svona.. annað en rigningin hér :)
Vala skrifaði
ææææi dúllan hún Eva... Velkomin heim mín kæra og þegar þú kemur til Eskifjarðar förum við á rúntinn.. og ég keyri! hahah ég hef prufað það með beu og írisi ég var úber kúl;)
adda skrifaði
Frábært :D Ég trúi því vel að þú hafir slegið í gegn. Það eina sem þig skortir í heiminum er pínulítið meira sjálfstraust, annars getur þú allt :D
Vala skrifaði
ég er besti driver....!:D haha
Tinna skrifaði
hmm.. samkvæmt mínum útreikningum ertu löngu komin frá Maspalomas.. what??

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 86 dögum
Aðfangadagur
Bloggsíður félaga